Blogg frá Baunalandi og Myndir af okkur

Stúlka "með fyrirvara"

Þá er 20 vikna sónar búið og gekk það allt vel, búið var að ákveða að við ætluðum að kíkja í pakkan og sjá hvað sé búið að pannta.
Eftir að læknirinn var búinn að skoða alla líkamsparta innan sem utan kom það upp úr honum að þetta væri stúlka.
Ekki þótti okkur það verra.
svo hélt læknirinn áfram að skoða og snúa þessum sónar haus fram og til baka, þegar það kemur upp úr honum að barnið sé búið að snúa sér og væri voðalegur hamagangur á því. Ekki þótti mér annað við hæfi en spyrja hann hvort barnið hafði skift um kyn á þessum hamagangi. Honum var ekkert voðalega skemmt við þessa athugasemd mína og sagði að þetta væri algerlega með fyrirvara og hann tæki enga ábyrgð á þessu. En allt leit vel út, og færði hann dagsetninguna til 30.júlí.
Veit ekki hvort það sé mikið að marka það en við bíðum og sjáum til, þetta er ekki það sem skiftir mestu máli

kv BHH

Dropbox

Ég prufaði að henda þessu inn eftir ábendingu frá Andra og þetta er alger snilld, auðvelt og fljótt í uppsetningu og viðhaldi

https://www.getdropbox.com/referrals/NTY4MDcyNDk

Nota þennan link, til að ná í, og fá 250mb extra pláss.

Til Hamingju með að búa í Reykjanesbæ

Þá er komið í ljós en einn kosturinn við að búa í Reykjanesbæ, fæðingardeild HSS verður lokað í sumar.

Við viljum koma eindregnum þökkum á framfæri til þeirra ráðamanna sem tóku þessa ákvörðun og munum eftir þessu þegar það kemur að kostningum í vor.

kv BHH

Lifandi

Að vera eða vera ekki, en allavega þá erum við lifandi, og hefur planið verið að koma með nýtt blogg á síðuna en það hefur fallið út.
Lítið er svo sem að frétta, flutt á klakan, komin í vinnu og bíðum eftir erfingja nr2. Tökum af fullum þunga þátt í að minnka skuldir landsmanna per. haus, með að fjölga þeim Eye-wink

Lengra verður þetta ekki í bili

Flugvøllur

Sitjum og bidum eftir flugi fra billund, og timinn lydur hægt, en annars hefur tetta gengid vel hingad til, svo kvedjur fra baunalandinu, i sidasta sinn
BHH

Tetris

Þetta verða langir flutningar..púfff

Það er ekki hægt að segja annað en að veðrið er ekki búið að leika um okkur hérna í Álaborg, hundfúlt sumar veður og hananú!!!!!!!!!!!!!!

Við erum búin að vera ágætlega dugleg við að pakka niður og stússast varðandi flutningana. Það er ekkert sniðugt að taka sér langan tíma í þetta, maður er endalaust í tetrisleik daginn út og inn, jafnvel þótt við sitjum í sófanum að slappa af.

Við höfum verið að reyna að hafa ofan af fyrir Bjarka í þessu svokallaða sumarfríi okkar og skelltum okkur því í Jumboland á laugardaginn ásamt Jesper, Anja og Rebecca, og skemmtum okkur konunglega. Þetta er stórt húsnæði með leikdót fyrir krakka á öllum aldri, síðan er hægt að taka með sér nesti eða barasta kaupa mat á staðnum, geggjað sniðugt. Því miður gleymdum við myndavélinni en þannig er nú það. Um kvöldið grilluðuðum við síðan saman með Siggu og Gunna og fjölskyldu. Bjarki og Sara Margrét voru að leika sér saman úti til klukkan 22:30 og var Bjarki mjög hissa að hann væri ennþá úti þegar nóttin væri..híhíhíhí. Á meðan sátum við fullorðna liðið og höfðum það kósý.

Það styttist í að við flytjum og verður eflaust mikið stress í næstu viku. Ég er búin að panta þurrt veður á föstudaginn, og svo þarf maður að dusta rykið af tetris hæfileikum sínum þegar gámurinn kemur á föstudaginn enda höfum við einungis 1 klst til að henda inn í hann :+/

Flutningar

Jæja þá er leti lífið búið og áfram með stressið......Stórir kassar og litlir kassar annar röndóttur og.........................

Eftir að mamma og pabbi fóru, var drifið sig í að byrja að pakka niður og mála og við munum vera að því næstu vikurnar!!!!!!
Það er búið að panta gáminn og kaupa flugmiða heim. Við eigum kvöldflug þann 29 júlí frá Billund til Kefló :+)

Ég get ekki sagt að neitt spennandi sé búið að gerast hjá okkur eftir að mamma og pabbi fóru.... Sama dag og þau fóru tók Bjarki upp á því að fljúga á hausinn af scooternum sínum. Hann fékk gat á ennið en það er næstum gróið og hann fær ágætt ör í staðin. Hann getur fundið upp á einhverri hetjusögu til að segja félögum sínum þegar hann verður stór um hvernig hann fékk þetta ör.

Allavegna, það fer að koma spenningur í mann að flytja heim í volæðið. Ég er ekki enn búin að finna vinnu og ekki lítur það vel út í augnablikinu ;+(

Kveðjur

Sonja Sigurðardóttir MSc

Jæja jæja þá er skólinn búinn, ég er komin með masterinn í viðskiptafræði og ég ætla aldrei aldrei aldrei aftur í skóla...múhahahaha

Mamma og pabbi voru að fara aftur til Íslands eftir að hafa stoppað í eina viku hjá okkur. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða þegar það er gaman. Fyrir viku síðan kláraði ég síðasta prófið og síðan var útskrift úr háskólanum síðasta fimmtudag. Athöfnin gekk hratt fyrir sig, það var búið að afhenda öll skírteini, taka myndir og skála í kampavín 1 klukkutíma eftir að hún byrjaði. Um kvöldið var haldin smá útskriftaveisla á Jensens Böfhús þar sem við þrjú ásamt mömmu og pabba hámuðum í okkur dýrindis steikur og var skálað í bjór fyrir áfanganum.

Veðrið er búið að vera betra en búið var að spá. Við erum því búin að fara á ströndina og skelltum okkur í tívolí. Ég dróg pabba með mér í rússibana og í FALLTURNINN sem er 55 m. Hehehee...við öskruðum bæði í kór á leið niður en þetta var samt voða gaman ;+) Síðan er að sjálfsögðu búið að kíkja í búðir og kaupa en það voru nú ekki gerð nein stórkaup.

Bjarki er hættur hjá dagmömmunni og verður í sumarfríi með mömmu sinni og pabba þangað til hann byrjar í leikskóla heima á Íslandi. Já það styttist óðum í að við flytjum til Íslands og verða næstu vikur nýttar í að pakka og mála...svaka fjör eða þannig!!!!!!!!!!!!!!!!!!

SKIL

Jæja þá erum við Laufey búin að skila lokaverkefninu okkar, þetta var myndar doðrantur og erum við svaklaega stolt af honum :+)
Þvílíkur léttir að vera búnar að þessu, það tók sinn tím að prenta þetta allt saman út og binda inn. Síðan var hlaupið og skilað inn ritgerðinni áður en skrifstofudaman myndi loka hjá sér. Við þurfum ekki að skila ritgerðinni fyrr en á fimmtudaginn næstkomandi, en það er fínt að vera bara búnar að þessu. Síðan en bara vörnin eftir þann 24. júní...PÚHAAAAAA. Mamma og pabbi ætla að koma í heimsókn til okkar sinnipartinn sama dag og prófið er, vonandi verður bara haldið upp á " meistara gráðuna" og skálað þegar þau koma.

Það er svo sem mest lítið að frétta af okkur síðan síðast. Góða veðrið er búið að leika við okkur en það er því miður spáð rigningu framundan. Fyrirtækið, Peugeot, ætlar að bjóða öllum starfsmönnum í Faarup Sommerland næsta laugardag og ég vona svo innilega að það verði allavegna þurrt þá.

Helga og Helgi eru komin með blogg- og myndasíðu, og er voða gaman að fá að fylgjast með hjá þeim.

Bjarki er búinn að fá afmælisgjöfina sína í ár, lightning McQuessn reiðhjól með hjálparadekkjum (að sjálfsögðu). Hann hjólaði til dagmömmunnar í morgun og var mjög duglegur að hjóla sjálfur á því.

Þangað til næst...Kveðjur

Endirinn að nálgast

já við erum ekki búin að vera dugleg að blogga undanfarið, en þegar veðrið er svona gott þá nennir maður engu hér á bæ :+)

Það styttist nú samt í að við flytjum til íslands og flytjum úr þessu sólríka landi hérna í Danmörku... í rigninguna og stressið heima á Íslandi...púha

Ég og Laufey erum nánast búnar með verkefnið okkar og stefnum á að skila á mánudaginn næstkomandi. Við áttum fund með leiðbeinandanum okkar síðasta föstudag og honum leist vel á verkefnið, en hafði að sjálfsögðu nokkrar athugasemdir sem gera ritgerðina bara betri...vonandi!!!!!!!!

Í gær var frídagur hérna í Danmörku og notuðum við tækifærið og skelltum okkur í "stóra" tívolíð, eins og Bjarki kallar það. Garðar og Anna Valdís komu með okkur. Allir fengu "tourband " nema Bergþór og síðan voru næstum öll tæki prófuð. Að sjálfsögðu fórum við Garðar í fallturninn og, eins og búast mátti við, varð maginn varð eftir efst uppi..híhíhíhí. Krakkarnir skemmtu sér alveg konunglega vel og væru eflaust til í að gera þetta á hverjum degi. Seinna um daginn var síðan grillveisla hér á bæ þar sem Bergþór grillaði íslenskt lambalæri og marineruð svínarif. Þetta var að sjálfsögðu allt rosalega gott og urðu allir vel saddir eftir á.

Bjarki er orðinn rosalega brúnn enda er hann nánast úti allan daginn, bæði hjá dagmömmunni og síðan hérna heima hjá sér. Við Bergþór erum líka að sjálfsögðu orðin þokkalega sæt og brún.